Margrét Sigurðardóttir

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Margrét Sigurðardóttir

Kaupa Í körfu

Frítímanum mínum kýs ég auðvitað helst að eyða í faðmi fjölskyldunnar. Við Eyrún, fjögurra ára dóttir mín, erum sérstaklega góðar saman og stefnum ótrauðar að því að syngja og tralla á þrettándabrennunni, sem kveikt verður í klukkan 17.00 á sunnudaginn með tilheyrandi flugeldagleði skömmu síðar. Gera má ráð fyrir að brennan verði óvenju vegleg í ár þar sem fresta varð áramótabrennunni sökum ótíðar. Við Nesbúar tökum þá bara tvöfalt á því á sunnudaginn, kveðjum gamla árið og fögnum því nýja með stæl, segir Margrét Sigurðardóttir, æskulýðsfulltrúi og brennustjóri Seltirninga. MYNDATEXTI Brennustjórinn Margrét Sigurðardóttir er harðákveðin í því að skemmta sér á þrettándagleði Seltirninga með Eyrúnu, 4 ára dóttur sinni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar