Jón Arnar Magnússon

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Jón Arnar Magnússon

Kaupa Í körfu

Jón Arnar Magnússon náði sér aldrei á flug á Evrópumeistaramótinu. Jón Arnar Magnússon tugþrautarkappi úr Tindastóli setti Norðurlandamet í sjöþraut á Evrópumeistaramótinu í Valencia um helgina, fékk 6.170 stig. Eigi að síður náði hann aðeins að hafna í 5. sæti af 13 keppendum sem komust klakklaust í gegnum þrautina, sem var lakara en hann hafði vonast eftir. Ívar Benediktsson blaðamaður og Ragnar Axelsson ljósmyndari fylgdust með Jóni í keppninni um helgina. Myndatexti: Jón Arnar hafði ekki heppnina með sér í síðustu greininni ­ 1000 m hlaupi. Jón, sem er aftastur til vinstri, og Indrek Kaesorg lentu í árekstri og féllu strax við á fyrstu metrunum. M.a. hlupu tveir yfir Jón. Hann lét fallið ekki aftra sér heldur stóð á fætur og hljóp á fleygiferð í átt að hópnum og náði fljótlega 4. sæti, en undir lokin varð hann að gefa eftir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar