Mývatn

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Mývatn

Kaupa Í körfu

Hita í jörðu er að finna allt frá mörkum Vatnajökuls að Axarfirði. Á þeirri leið er margt um virkjunarkosti, sem Ragnar Axelsson og Önundur Páll Ragnarsson kynntu sér í vikunni. Jökulsá á Fjöllum fylgir líka sömu leið, en verður að öllum líkindum ekki virkjuð í bráð. Í Skútustaðahreppi og Þingeyjarsveit er mikið um orkurík svæði. Landsvirkjun er fyrirferðarmesta orkufyrirtækið á svæðinu en á sumum svæðum vinnur hún í samstarfi við heimamenn, sveitarfélögin og norðlensk orkufyrirtæki. MYNDATEXTI Orka fyrir álver á Bakka Háhitasvæðin í nágrenni Mývatns eru Þeistareykir, Gjástykki, Krafla og Bjarnarflag. Unnið er að rannsóknum og umhverfismati á þessum svæðum. Saman gætu þau gefið allt að 430 MW afl ef allt gengur upp hjá Landsvirkjun

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar