Brim

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Brim

Kaupa Í körfu

MIKIÐ hvassviðri gekk yfir landið í gær og í nótt. Ekki var tilkynnt um tjón á Vestfjörðum en í gærkvöldi áttu lögreglan og björgunarsveitir fullt í fangi með að sinna óveðursútköllum á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum, m.a. losnaði flotbryggja í höfninni í Hafnarfirði. Mjög brimaði við norðanvert Snæfellsnes í norðanáttinni sem brast á í gær. Keflavíkurvör undir Jökli var eitt sinn fræg lending, jafnt að vetri sem vori. Ekki var auðvelt að sjá í briminu í gær hvernig það gat gengið fyrir sjómenn á árabátum að lenda í þessari litlu vík.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar