Stuttir dagar á Reykjavíkurtjörn

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Stuttir dagar á Reykjavíkurtjörn

Kaupa Í körfu

ÞÓ AÐ Kári bíti í kinn þessa dagana verður það ekkert endilega til þess að krakkar húki inni við. Margir nýta sér frosið yfirborð Tjarnarinnar í miðborg Reykjavíkur til að renna sér á skautum og sumir grípa jafnvel til hokkíkylfunnar og leika sér í frostinu. Aðrir stytta sér leið yfir Tjörnina og spara sér þannig sporin. Sólargangur styttist óðum og sólin kyssir nú rétt húsþökin. Það veit á gott því brátt fer hún að hækka á ný.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar