Nauthólsvík

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Nauthólsvík

Kaupa Í körfu

SJALDAN blómstrar ástin meir en á sumrin þegar sólin skín og náttúran kallar. Þetta ástfangna par naut sumarhitans í Nauthólsvíkinni í gær og þau voru ófeimin við að láta vel hvort að öðru í flæðarmálinu. Eitthvað urðu þeir þó skrýtnir á svipinn strákarnir í pottinum fyrir aftan þegar kossinn varð sem dýpstur enda komu þeir á ströndina í allt öðrum erindagjörðum, en enginn skyldi efast um að þeir læri á endanum að meta slík blíðuhót sjálfir. Svo er bara að sjá hvort sumarástin endist út veturinn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar