Óveður í Reykjavíkurhöfn

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Óveður í Reykjavíkurhöfn

Kaupa Í körfu

FLUG fór úr skorðum, þakplötur þeyttust af húsum og bátar lágu flestir bundnir við höfn þegar kröpp haustlægð, sú fyrsta í ár, gekk yfir suðvesturhornið í gær. Veðurstofan spáir norðaustlægri átt í dag, 15-23 m/s norðvestanlands og við suðausturströnd landsins. Draga mun úr vindi síðdegis. Lægðin færðist norður í gærkvöldi og skemmdust tveir bílar á Ísafirði þegar þakplötur fóru af rækjuvinnslunni Kampi. Þá féll aurskriða úr Eyrarhlíð á Hnífsdalsveg við Ísafjörð laust fyrir klukkan 20 í gærkvöldi. Skriðan var um tveggja metra djúp og þurfti að loka fyrir umferð vegna hennar. Björgunarsveitir voru viðbúnar frekara hvassviðri og allir bátar í landi en að sögn lögreglunnar á Ísafirði var ekki vitað um meira tjón á Vestfjörðum á tólfta tímanum í gærkvöldi. Veðrið setti ferðalög og flutninga úr skorðum en ekki þurfti þó að gera breytingar á flugáætlun í Keflavík af völdum veðurofsans

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar