Svanborg Þ. Sigurðardóttir verslunarstjóri hjá Eymundsson

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Svanborg Þ. Sigurðardóttir verslunarstjóri hjá Eymundsson

Kaupa Í körfu

Oft byrja ég á því að renna augunum eftir bókahillunum, opna kannski eina bók, blaða í henni og dett í hana. Gleymi mér algerlega og geng aftur á bak alveg dottin út þar til ég lendi á stól sem ég sest í ómeðvitað. Stundum er ég alls ekki í stuði fyrir þessa bók og sting henni aftur í hilluna, jafnvel fullkomlega áhugalaus, finn ekkert í fullum hillunum og verð að kíkja í bókabúðina. Ósjaldan þegar ég er að opna kassa fullan af nýjum erlendum bókum birtist hún þarna í honum miðjum. Liggur og bíður, bókin sem mig langar að lesa, eftir þennan magnaða höfund sem skrifaði þarna bókina manstu sem var svo frábær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar