Grundartangi

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Grundartangi

Kaupa Í körfu

Risaskip á Grundartanga. TVÖ risastór flutningaskip lágu samtímis við bryggju í Grundartangahöfn í gær. Að sögn Péturs Baldvinssonar hafnarstjóra var annað skipið, Leader, að flytja 16.500 tonn af súráli til Norðuráls. Skipið er ekki fulllestað en burðargeta þess er 37.500 tonn og það er skráð í Panama. Hitt skipið, Highland Trust, er með 4.200 tonn af koksi til Íslenska járnblendifélagsins. Burðargeta skipsins er 42.800 tonn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar