Dettifoss

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Dettifoss

Kaupa Í körfu

Fjölmargir ferðamenn hafa líklegast skoðað Dettifoss í sumar enda hefur veðurblíðan á norðausturhorni landsins verið einstök síðustu mánuðina. Íslendingar verða sífellt duglegri að ferðast um eigið land og sama má reyndar segja um erlenda ferðamenn, en aldrei hafa fleiri erlendir ferðamenn heimsótt landið á fyrstu sjö mánuðum ársins en í ár. Alls heimsóttu 157.000 erlendir gestir Ísland þessa fyrstu sjö mánuði og er það 12% aukning frá því í fyrra, samkvæmt upplýsingum frá Ferðamálaráði Íslands. Fjölgunin er um 17.000 manns og er aukningin mest meðal Bandaríkjamanna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar