Fram - ÍBV 1: 2

Fram - ÍBV 1: 2

Kaupa Í körfu

Hlutskipti FRAM og ÍBV er ólíkt í Landsbankadeildinni í knattspyrnu. Eyjamenn, sem gerðu góða ferð suður til Reykjavíkur í gær og lögðu Framara, 2:1, á Laugardalsvellinum, eru komnir í hörkuslag í toppbaráttu deildarinnar en Framarar sitja sem fastast á botni deildarinnar og hafa nú leikið tíu leiki í röð í deildinni án sigurs og með sama áframhaldi leika þeir í 1. deild að ári. MYNDATEXTI: Ómar Hákonarson, Fram, skallar boltann að marki ÍBV. Atli Jóhannsson og Andri Ólafsson, leikmenn ÍBV, reyna að koma vörnum við.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar