Alþýðusambands Íslands

Alþýðusambands Íslands

Kaupa Í körfu

FRELSISHUGTAKIÐ hefur verið rifið úr samhengi við þau tvö önnur hugtök sem þurfi að standa með því, þ.e. jafnrétti og bræðralagi. Þetta er mat Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, formanns Samfylkingarinnar, en hún flutti ávarp á 90 ára afmælisfagnaði jafnaðarmannahreyfingarinnar hérlendis sem haldinn var fyrir troðfullu húsi í Ráðhúsinu í gær. MYNDATEXTI: Erindi á afmælishátíðinni fluttu Benedikt Davíðsson, fyrrv. forseti Alþýðusambands Íslands, Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi formaður Alþýðuflokksins, og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar. Auk þeirra gefur hér að líta Bryndísi Schram, Hjörleif Sveinbjörnsson, Jóhönnu Sigurðardóttur, fyrrverandi ráðherra og þingkonu Alþýðuflokksins, og Jón Sigurðsson, fyrrverandi ráðherra og þingmann Alþýðuflokksins.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar