Afgangar - Austurbær

Afgangar - Austurbær

Kaupa Í körfu

AGNAR Jón Egilsson, eins og kemur fram í leikskrá, gerir hér tilraun til að færa leikhúsið nær leikmáta sjónvarpsins. Áhorfendur sitja fyrir framan svartan grunnan kassa þar sem nálægð er mikil við leikendur en frelsi þeirra síðarnefndu til hreyfinga takmarkað. Hversdagsleg saga er sögð úr íslensku þjóðlífi. Drukkin kona ratar uppí rúm hjá ekki alveg eins drukknum karlmanni - úr því þróast samband. Höfundur klippir atburðarásina upp og farið er aftur og fram í tíma. Sum atriði, "nærmyndir", hljóma úr hátölurum. Lögð er áhersla á eðlilegan leik, athafnir allar hversdagslegar. MYNDATEXTI: Afgangar "Hversdagsleg saga er sögð úr íslensku þjóðlífi. Drukkin kona ratar uppí rúm hjá ekki alveg eins drukknum karlmanni - úr því þróast samband," segir María Kristjánsdóttir um leikritið.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar