Lögreglan í Reykjavík

Lögreglan í Reykjavík

Kaupa Í körfu

Vændi á Íslandi fer fram neðanjarðar í þeim skilningi að mál sem það snerta rata sjaldan inn á borð opinberra aðila eða félagasamtaka. Fólk sem er eða hefur verið í vændi er venjulega tregt til að ræða það. Leiti það sér hjálpar er það oft af öðrum ástæðum. Fólk sem kaupir vændi fer þó enn leyndara með það. Dómsmálaráðuneytið lét gera skýrslu um vændi á Íslandi og félagslegt umhverfi þess árið 2001. Þar er vændi skilgreint sem skipti á kynmökum fyrir greiða, peninga eða vímuefni og það sagt þrífast einkum í tengslum við nektardansstaði og í fíkniefnaheiminum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar