Hjálmar - Nasa

Hjálmar - Nasa

Kaupa Í körfu

REGGÍHLJÓMSVEITIN Hjálmar mun spila á Nasa á laugardaginn ásamt meisturunum Megasi og KK. Ekki er langt síðan andláti Hjálma var lýst yfir og því er fyrsta spurningin sem brennur á blaðamanni þegar hann hringir í Hjálmameðliminn Guðmund Kristinn Jónsson hvort þessir tónleikar séu dauðakippur eða þeir séu alkomnir aftur? "Jú, við vorum hættir," svarar Guðmundur. "Svo föttuðum við hvað það er gaman að spila og komum saman aftur enda erum við allir á lífi og því ekkert sem stóð í vegi fyrir okkur. Við fengum líka góða hvíld á hver öðrum í þetta hálfa ár sem við vorum hættir. MYNDATEXTI: Saman - Hjálmar á tónleikum á Nasa áður en þeir hættu fyrir hálfu ári síðan. Þeir eru nú komnir saman aftur og líklega til frambúðar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar