Ísland - Serbía

Ísland - Serbía

Kaupa Í körfu

Besta tilfinning í heimi VIÐ vorum svolítið lengi í gang sem er alveg hrikalega pirrandi. Þær lágu samt náttúrlega í vörn þannig að það tók tíma að brjóta þær niður. Svo settum við bara í gírinn í seinni hálfleiknum og kláruðum þetta vel eins og við þurfum að gera á EM, sagði Edda Garðarsdóttir eftir sigurinn góða á Serbum á laugardaginn. Leikurinn var sá fyrsti á Laugardalsvelli síðan Ísland vann þar Írland í nóvember á síðasta ári og Edda, sem er flutt til Svíþjóðar og leikur þar með Örebro, var hæstánægð með framlag áhorfenda. MYNDATEXTI Edda Garðarsdóttir

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar