Bílvelta í Ártúnsbrekku

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Bílvelta í Ártúnsbrekku

Kaupa Í körfu

STÓR gámabíll valt á hliðina á aðrein frá Ártúnsbrekku inn á Sæbraut í Reykjavík um klukkan 15 í gær. Ökumaður bílsins var fluttur á slysadeild Landspítalans. Bíllinn var með 30 feta gám og varð að loka aðreininni um tíma vegna óhappsins. Nokkuð af olíu lak úr bílnum og voru starfsmenn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins kallaðir út til að hreinsa hana upp. Mikil vinna fór í að ná olíunni upp. Töluverðar skemmdir urðu á húsi bílsins. Tildrög slyssins eru ókunn en verða rannsökuð hjá lögreglunni í Reykjavík.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar