Tældi 9 ára stúlku upp í bifreið

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Tældi 9 ára stúlku upp í bifreið

Kaupa Í körfu

Lokkaði 9 ára telpu upp í bíl í Kópavogi og skildi hana eftir á Þingvallavegi KARLMAÐUR um tvítugt er eftirlýstur af lögreglu fyrir að lokka níu ára telpu í Kópavogi upp í bíl til sín á miðvikudag og skilja hana eftir í reiðileysi á Þingvallavegi. Maðurinn var sköllóttur með svört sólgleraugu og lítið skegg undir neðri vör samkvæmt lýsingu barnsins. Þóttist hann vera lögreglumaður þegar hann ók upp að stúlkunni á Álfhólsvegi klukkan 15:45 þá um daginn þegar hún var á leið heim frá vinkonu sinni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar