Lögreglan og vörubílstjórar. Meintur mótmælaakstur vörubílstjóra

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Lögreglan og vörubílstjórar. Meintur mótmælaakstur vörubílstjóra

Kaupa Í körfu

Atvinnubílstjórar ollu nokkrum töfum á umferð í Reykjavík í gær þegar um tuttugu og fimm vöruflutningabifreiðum var ekið löturhægt um helstu umferðargötur borgarinnar. Með þessum aðgerðum vildu atvinnubílstjórar mótmæla gjaldi á díselolíu sem þeir telja of hátt og fela í sér mismunun. Bílstjórarnir söfnuðust saman við Sæmundargötu við Háskóla Íslands. MYNDATEXTI: Lögreglumenn á bifhjólum fóru fyrir bílalest atvinnubílstjóranna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar