Vetrarhátíð

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Vetrarhátíð

Kaupa Í körfu

LEIKSKÓLABÖRN frá leikskólum í miðborg Reykjavíkur og Hlíðahverfi fóru ásamt lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í skrúðgöngu eftir hádegið í gær í tilefni Vetrarhátíðar. Gengið var frá Hlemmi og að Miklatúni. Börnin tóku lagið með Lögreglukórnum og skemmtu allir viðstaddir sér hið besta. Meðal göngumanna voru Stefán Eiríksson lögreglustjóri, Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn og síðast en ekki síst Lúlli löggubangsi sem ef til vill vakti mesta athygli leikskólabarnanna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar