Slá ekin niður á Miklubraut

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Slá ekin niður á Miklubraut

Kaupa Í körfu

HÆÐARRÁ yfir Miklubraut féll niður á nyrðri akbrautina laust fyrir hádegi í gær og lenti á tveimur bílum. Ráin féll þegar vörubíll með of hátt reistan krana ók á hana um kl. 11.20 í gærmorgun. Öllum fjórum akreinum brautarinnar til vesturs var lokað vegna óhappsins og olli það talsverðri umferðarteppu. Ekki urðu nein slys á fólki en bílarnir tveir skemmdust talsvert samkvæmt upplýsingum lögreglunnar. MYNDATEXTI: Sluppu - Guðrún Ósk Pálsdóttir var farþegi í fólksbíl sem slapp naumlega við að lenda á slánni. Óhappið átti sér stað á Miklubraut í gær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar