Austurvöllur - Mótmæli við Alþingishúsið

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Austurvöllur - Mótmæli við Alþingishúsið

Kaupa Í körfu

Nokkur þúsund manns tóku þátt í heitum mótmælum fyrir framan Alþingishúsið MIKILL hiti var í mótmælum fyrir framan Alþingishúsið í allan gærdag og langt fram á nótt. Ætla má að nokkur þúsund manns hafi tekið þátt í mótmælunum fyrstu tólf tímana sem þau stóðu. Þegar Morgunblaðið fór í prentun á öðrum tímanum í nótt voru innan við þúsund manns á svæðinu. Eru þetta talin mestu mótmæli við Alþingishúsið síðan inngöngu Íslands í NATO var mótmælt árið 1949. MYNDATEXTI: Mótmæli "Krafa fólksins er einföld - það vill kosningar. Ef stjórnvöld notuðu eyrun til að hlusta á þessa sterku og einföldu kröfu og sett yrði dagsetning á kosningar, þá myndi almenningur setja þessa orku í annan farveg til þess að undirbúa lýðræðisbyltinguna," sagði Svandís Svavarsdóttir borgarfulltrúi sem var ein þeirra sem lögðu leið sína niður á Austurvöll í gærkvöldi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar