Víkurvegur

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Víkurvegur

Kaupa Í körfu

HÁRSBREIDD munaði að stórslys yrði þegar maður á þrítugsaldri hóf flótta undan lögreglu í Reykjavík í gærkvöldi á hátt í 200 kílómetra hraða. Ljóst var að maðurinn hugðist ekki hlýða lögreglu undir neinum kringumstæðum og hafði hann ekið utan í fjórar lögreglubifreiðar og einn bíl vegfaranda á ferð áður en lögreglu tókst að þvinga hann út af veginum þar sem hann stefndi inn í íbúðarhverfi í Grafarvogi. Allir lögreglubílar á höfuðborgarsvæðinu voru í viðbragðsstöðu en ökumaður ásamt farþega voru handteknir ómeiddir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar