Mottukeppni - Lið Lögreglu höfuðborgarsvæðisins

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Mottukeppni - Lið Lögreglu höfuðborgarsvæðisins

Kaupa Í körfu

„STEMNINGIN sem myndast hefur í tengslum við þetta átak er mjög skemmtileg. Þetta hefur haft góð áhrif á starfsandann. Í raun held ég að það hafi verið leyndur draumur mjög margra lögreglumanna að safna í mottu en eiginkonurnar ekki viljað það. En núna fengu menn loksins tækifæri,“ segir Þórir Ingvarsson rannsóknarlögreglumaður. Tæplega fjörutíu lögreglumenn í liði höfuðborgarsvæðisins hafa tekið þátt í átakinu Mottu Mars. Menn úr nánast öllum deildum lögreglunnar hafa tekið þátt í átakinu, bæði yfirmenn og lægra settir. Mottuhópnum, það er þeim úr honum sem heimangengt áttu, var svo safnað saman til myndatöku á tröppum lögreglustöðvarinnar við Hverfisgötu í gærmorgun.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar