Reiðhjólauppboð Lögreglu höfuðborgarsvæðisins

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Reiðhjólauppboð Lögreglu höfuðborgarsvæðisins

Kaupa Í körfu

Rúmlega 100 reiðhjól voru boðin upp hjá óskilamunadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í dag. Fjöldi manns mætti á uppboðið og buðu ákaft í hjólin. Hjólin sem seld voru hafa fundist í óskilum víða á höfuðborgarsvæði og enginn hefur hirt um að sækja. Á síðasta ári voru tilkynningar um stolin reiðhjól tæplega 650 hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Ekki er ljóst hvað verður um meirihluta þeirra enda berst aðeins hluti hjólanna til óskilamunadeildar. Algengt er að hjól berist þangað nokkrum mánuðum eftir að þeim var stolið. Eigendunum nægir því sjaldnast að koma bara til lögreglu strax eftir þjófnaðinn, þeir verða líka að koma aftur nokkrum vikum seinna til að fullreyna hvort hjólin séu í vörslu lögreglu eða ekki. Lögreglan bendir fólki á mikilvægi þess að geyma reiðhjól á eins öruggum stað og unnt er og alls ekki skilja þau eftir ólæst. Ef illa fer, og hjóli er stolið, getur komið sér vel ef eigandinn hefur raðnúmer (stellnúmer) þess tiltækt. Það auðveldar lögreglu að koma því til skila ef það á annað borð kemur í óskilamunadeild hennar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar