Gassprenging og eldsvoði í Ofanleiti

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Gassprenging og eldsvoði í Ofanleiti

Kaupa Í körfu

Einn er mikið slasaður eftir að sprenging varð í íbúð í fjölbýlishúsi í Ofanleiti um ellefuleytið í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins er ekki kunnugt um slys á fleirum. Lögregla rýmdi húsið. Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri segir að mjög miklar skemmdir hafi orðið á íbúðinni, sprengingin hafi verið afar kröftug. Verið er að reyna að slökkva eldinn í íbúðinni, hann mun ekki hafa breiðst út en verið er að reykræsta íbúðina fyrir ofan. Braki úr húsgögnum og innanstokksmunum rigndi yfir nágrennið. Allt tiltækt slökkvilið er á staðnum og að auki hefur verið kallað út það sem nefnist „litla úthringingin“, en þá eru allir slökkviliðsmenn sem eru á bakvakt kallaðir út.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar