Banaslys Vesturlandsvegur á Kjalarnesi
Kaupa Í körfu
Þrír létust og sjö slösuðust alvarlega í umferðarslysi á Kjalarnesi Eitt mannskæðasta umferðarslys sem orðið hefur Tugir björgunarmanna voru sendir á slysstaðinn ÞRÍR karlmenn létust og sjö manns slösuðust alvarlega í gærkvöldi á Vesturlandsvegi við Víkurgrund á Kjalarnesi, í einu allra mannskæðasta umferðarslysi sem orðið hefur hérlendis. Nítján manna rúta á norðurleið og jeppabifreið sem kom úr gagnstæðri átt skullu saman með fyrrgreindum afleiðingum.Rútan var í samfloti með annarri rútu, sem saman fluttu um 60 manna hóp. Þar var á ferð starfsfólk ferðaskrifstofu í Reykjavík sem var á leið í óvissuferð norður í land. Þeir farþegar úr nítján manna rútunni sem slösuðust voru fluttir með sjúkrabifreiðum á slysadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur í Fossvogi og hátt í 30 manns að auki með seinni rútunni á Landspítalann, sem hafði undirbúið fjöldamóttöku og áfallahjálp. MYNDATEXTI: Rútan lá utanvegar og mikið skemmd eftir áreksturinn við jeppabifreiðina.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir