Sálumessa Verdis

Skapti Hallgrímsson

Sálumessa Verdis

Kaupa Í körfu

Mikil ánægja var með hátíðartónleikana sem fram fóru í Íþróttahöllinni á Akureyri á sunnudaginn; þar sem Sálumessa Verdis var flutt af Sinfóníuhljómsveit Norðurlands ásamt Kór Akureyrarkirkju, Kór Langholtskirkju í Reykjavík og Kammerkór Norðurlands ásamt einsöngvurunum Kristjáni Jóhannssyni, Kristni Sigmundssyni, Björgu Þórhallsdóttur og Annamaria Chiuri undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar. Myndatexti: Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Dorritt Moussaieff, heitkona hans, voru meðal fjölmargra áheyrenda. Eftir að einsöngvurunum voru afhentir blómvendir kastaði Kristján Jóhannsson gulri rós til Dorrittar, sem sat á fremsta bekk. Frá vinstri: Sigrún Björk Björnsdóttir, formaður menningarmálanefndar Akureyrar, Jón Björnsson, eiginmaður hennar, Ólafur Ragnar Grímsson, Dorritt Moussaieff og Þóra Ákadóttir, forseti bæjarstjórnar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar