ÍR - Haukar 25 : 33

Sverrir Vilhelmsson

ÍR - Haukar 25 : 33

Kaupa Í körfu

Haukar eru svo sannarlega með besta handknattleikslið landsins í karlaflokki, á því leikur enginn vafi. Því til staðfestingar innsigluðu þeir sinn þriðja Íslandsmeistaratitil á fjórum árum í gærkvöldi með því að leggja ÍR-inga þriðja sinni í fjórum viðureignum liðanna í úrslitakeppninni um Íslandsmeistaratitilinn, lokatölur, 33:25, í Austurbergi. Myndatexti: Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka, var tolleraður af lærisveinum sínum eftir sigurinn á ÍR-ingum í Austurbergi í gær þar sem Haukar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í fjórða sinn, þar af þann þriðja á síðustu fjórum árum, tveir þeir síðustu undir stjórn Viggós.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar