Mandarínönd

Halldór Sveinbjörnsson

Mandarínönd

Kaupa Í körfu

"Það kom mér á óvart að það skyldi vera fugl inni í búri hjá okkur og ég var mjög hissa að það skyldi vera mandarínönd," segir Finnbogi Bernódusson í Bolungarvík, en öndin er nú í endurhæfingu í Náttúrugripasafninu í Bolungarvík. Finnbogi segir að öndin hafi sennilega komist inn um hringlaga loftræstitúðu, sem er um fjórar tommur í þvermál, en ristin hafi dottið úr. "Þegar konan kom til mín í vinnuna í morgun sagði hún mér að það hefði komist fugl inn í búrið en hann hefði sennilega farið út aftur./Mandarínöndin er frá Asíu og var flutt þaðan endur fyrir löngu til Evrópu þar sem hún var höfð til skrauts í skrúðgörðum en hún verpir í trjám. Þessi mandarínönd er minni en stokkönd en stærri en algengar andartegundir hérlendis, að sögn Finnboga. ENGINN MYNDATEXTI. (Mandarinönd, ásamt Finnboga Bernódussyni frá Bolungarvík. Ljósm: Halldór Sveinbjörnsson)

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar