Borgfirskir háskólar með kynningu

Guðrún Vala Elísdóttir

Borgfirskir háskólar með kynningu

Kaupa Í körfu

Borgfirsku háskólarnir tveir á Bifröst og Hvanneyri kynntu námsframboð nýlega í verslunarmiðstöðinni Hyrnutorgi. Þetta var í fyrsta sinn sem þessir skólar taka sig saman um að kynna námsframboð og með framtakinu er verið að gera tilraun með að færa upplýsingagjöf um nám nær almenningi. Að sögn kynningarstjóranna tveggja sýndu margir skólunum áhuga og fengu upplýsingar um nám á sviði viðskipta, lögfræði, náttúruvísinda og landbúnaðar. MYNDATEXTI: Guðrún Jónsdóttir, kynningarstjóri Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri, og Auðbjörg Agnes Gunnarsdóttir, kynningarstjóri Viðskiptaháskólans á Bifröst, veita Hrefnu B. Jónsdóttur upplýsingar um nám heima í héraði.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar