Kvikmyndahátíðin í Cannes 2003

Halldór Kolbeins

Kvikmyndahátíðin í Cannes 2003

Kaupa Í körfu

ÞAÐ virðist orðinn siður á kvikmyndahátíðinni í Cannes að samfagna einum stærsta bíóviðburði ársins og um leið nýta sér athyglina sem hann jafnan fær. Fyrir tveimur árum var það Föruneyti hringsins, í fyrra annar hluti Stjörnustríðsins og Gengi New York-borgar. Í ár er það annar hluti Matrix (Matrix: Endurhlaðið) sem opinberuð er formlega almenningi á Cannes-hátíðinni. Hátíðarsýningin fór fram með pomp og prakt í gærkvöldi en fyrr um daginn höfðu blaðamenn fengið tækifæri til að sjá myndina og virtust almennt sáttir, enda lítil ástæða til annars - sjónarspilið hreint ólýsanlegt og væntingar eftir þriðju myndinni, Byltingunni, sem frumsýnd verður seinna á árinu jafnvel enn þá meiri en eftir þessari MYNDATEXTI: Hélène de Fougerolles fer með eitt af aðalhlutverkunum í opnunarmynd kvikmyndahátíðarinnar í Cannes, Fanfan la Tulipe. Hún lék einnig kærustu Ágústs (Hilmis Snæs) í Hafinu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar