Fylgst með Eurovision 2003

(C) MOTIV-MYND, Jón Svavarsson

Fylgst með Eurovision 2003

Kaupa Í körfu

Fylgst með Evróvisjón út um borg og bý ÞAÐ var að vanda stemmning í kringum Evróvisjónkeppnina, en hún á það til að magnast upp úr öllu valdi þegar Frónverjar eru á meðal þátttakenda. Á laugardaginn mátti líta auð stræti og torg á meðan flestir landsmenn komu sér fyrir hjá sjónvarpsskjám til að styðja við hana Birgittu okkar. Players í Kópavogi var einn þeirra veitingastaða sem settu upp sérstaka kvölddagskrá af tilefninu, en þar tróðu nokkrar Evróvisjónkempur upp og tóku lagið. MYNDATEXTI: Páll Óskar og Helga Möller sneru bökum saman og sungu Evróvisjón til dýrðar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar