Kárahnjúkur /Framkvæmdir

Sigurður Aðalsteinsson

Kárahnjúkur /Framkvæmdir

Kaupa Í körfu

Verktakafyrirtækin Impregilo og Arnarfell starfa nú af fullum krafti við undirbúning stíflugerðar og borun aðrennslisganga Kárahnjúkavirkjunar. Byrjað var í síðustu viku að bora tvenn hjáveitugöng við enda rampsins niður í Hafrahvammagljúfur og stefnt á að ljúka því verki í lok október. Verður Jökulsá á Dal þá veitt um þessi göng til að stíflugerðin geti farið fram óhindruð. Myndatexti: Starfsmenn verktakafyrirtækisins Arnarfells eru að setja upp steypustöð á Kárahnjúkasvæðinu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar