Alþingi 2003

Brynjar Gauti

Alþingi 2003

Kaupa Í körfu

Hlutað var um sæti þingmanna á Alþingi síðdegis í gær eftir að gengið hafði verið frá kosningu í forsætisnefnd, fastanefndir og alþjóðanefndir. Halldór Blöndal, forseti Alþingis, gerði það reyndar að tillögu sinni að ekki yrði hlutað um sæti þingmanna að þessu sinni þar sem gert væri ráð fyrir því að þessu sumarþingi myndi ljúka síðar um kvöldið. Hluta á um sæti þingmanna við setningu hvers nýs löggjafarþings, skv. þingsköpum Alþingis. Myndatexti: Hlutað var um sæti þingmanna á Alþingi í gær. Á myndinni sitja nýju þingmennirnir Birgir Ármannsson, Sjálfstæðisflokki, og Ágúst Ólafur Ágústsson, Samfylkingu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar