Í Árbæjarlaug

Ragnar Axelsson

Í Árbæjarlaug

Kaupa Í körfu

ÁRBÆJARLAUG er ævintýraheimur í augum yngstu sundiðkendanna á góðviðrisdögum. Beljandi fossar, hraðskreiðar vatnsrennibrautir og puðandi vatnsstrókar eru í senn ógnvekjandi og óendanlega spennandi. Skrækir og öskur verða þá partur af upplifuninni sem ungir og oftast aldnir njóta saman. Í augum sumra er þó mesta áskorunin að sleppa höndum stutta stund af sundlaugarbakkanum, eins og þessi hugrakka dama á myndinni, á meðan mamma og pabbi fylgjast stolt með.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar