Hnefaleikar

Arnaldur Halldórsson

Hnefaleikar

Kaupa Í körfu

VON ER á, þegar myrkri slær yfir áhorfendapallana í Laugardalshöll í kvöld, og ljóskastararnir lýsa upp hnefaleikahringinn, að áhorfendur gangi af göflunum þegar húsið drynur af trumbuslætti og fremstu hnefaleikakappar Íslands stíga fram: svitinn perlar á enninu undan höfuðhlífinni og hanskarnir reyrðir um vöðvastælta handleggina, reiðubúnir að dynja á frændum okkar Írum í þriðju hnefaleikakeppninni sem haldin er hér á landi. MYNDATEXTI: Margir frammámenn í írska boxheiminum koma til landsins í tilefni keppninnar og var haldin móttaka í höfuðstöðvum Íþróttasambands Íslands þar sem Ellert Schram veitti viðtöku heiðursplatta: Paddy Duffy, Ellert Schram, Alanna Audley og Billy McKee, liðsstjóri.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar