Cannes 2003

Halldór Kolbeins

Cannes 2003

Kaupa Í körfu

Hvar verður þessi Cannes-kvikmyndahátíð haldin í ár? á poppstjarnan Christina Aguilera að hafa spurt. Kannski heimskuleg spurning. Og þó ekki, því hugtakið Cannes er orðið svo órjúfanlegur hluti kvikmyndalistarinnar, en ekki beint sjálfur bærinn litli í Provence-héraði í Suður-Frakklandi heldur hátíðin sem þar er haldin, einmitt árlega eins og Aguilera blessunin gat sér rétt til um. Halldór Kolbeins ljósmyndari og Skarphéðinn Guðmundsson blaðamaður sóttu bæinn heim og hátíðina sem lauk um síðustu helgi og fylgdust hugfangnir með þessum skrautlega darraðardansi. MYNDATEXTI. RAUÐI DREGILLINN: Fyrir miðri lífæð Cannes-hátíðar, á La Croisette-strandgötunni, er sjálft hjartað, Hátíðarhöllin, og margumræddur rauður dregill, sem liggur upp tröppurnar inn í Lumiére-sýningarsalinn reisulega. Öngþveitið er jafnan mikið þegar stjörnurnar renna í hlað og ganga dregilinn, veifa til aðdáenda sinna og ljósmyndara, sem umlykja allt, eftir fyrirfram ákveðnum tilskipunum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar