Cannes 2003

Halldór Kolbeins

Cannes 2003

Kaupa Í körfu

Hvar verður þessi Cannes-kvikmyndahátíð haldin í ár? á poppstjarnan Christina Aguilera að hafa spurt. Kannski heimskuleg spurning. Og þó ekki, því hugtakið Cannes er orðið svo órjúfanlegur hluti kvikmyndalistarinnar, en ekki beint sjálfur bærinn litli í Provence-héraði í Suður-Frakklandi heldur hátíðin sem þar er haldin, einmitt árlega eins og Aguilera blessunin gat sér rétt til um. Halldór Kolbeins ljósmyndari og Skarphéðinn Guðmundsson blaðamaður sóttu bæinn heim og hátíðina sem lauk um síðustu helgi og fylgdust hugfangnir með þessum skrautlega darraðardansi. MYNDATEXTI. LJÓSMYNDAKOSS: Enn þykir það mikil upphefð að vera boðinn á Cannes-hátíðina og gjarnan má sjá stjörnurnar gera sitt til þess að varðveita minningarnar. Hin spænska Pénelope Cruz var aðalstjarna opnunarmyndarinnar Fanfan La Tulip og hlaut mikla athygli fyrir er hún mætti til sýningarinnar. Sjálf veitti hún ljósmyndara Morgunblaðsins athygli er þau smelltu hvort á annað þessum "ljósmyndakossi".

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar