Cannes 2003

Halldór Kolbeins

Cannes 2003

Kaupa Í körfu

Hvar verður þessi Cannes-kvikmyndahátíð haldin í ár? á poppstjarnan Christina Aguilera að hafa spurt. Kannski heimskuleg spurning. Og þó ekki, því hugtakið Cannes er orðið svo órjúfanlegur hluti kvikmyndalistarinnar, en ekki beint sjálfur bærinn litli í Provence-héraði í Suður-Frakklandi heldur hátíðin sem þar er haldin, einmitt árlega eins og Aguilera blessunin gat sér rétt til um. Halldór Kolbeins ljósmyndari og Skarphéðinn Guðmundsson blaðamaður sóttu bæinn heim og hátíðina sem lauk um síðustu helgi og fylgdust hugfangnir með þessum skrautlega darraðardansi. MYNDATEXTI. HITTU EKKI: Jackie Chan og Steve Coogan, aðalleikarar nýrrar útgáfu á Umhverfis jörðina á 80 dögum, gerðu heiðarlega tilraun en misheppnaða til þess að smella kossi á mótleikkonu sína, hið forkunnarfagra franska fljóð Cécile de France, sem forðaði sér í tæka tíð, við mikla kátínu viðstaddra.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar