Cannes 2003

Halldór Kolbeins

Cannes 2003

Kaupa Í körfu

Hvar verður þessi Cannes-kvikmyndahátíð haldin í ár? á poppstjarnan Christina Aguilera að hafa spurt. Kannski heimskuleg spurning. Og þó ekki, því hugtakið Cannes er orðið svo órjúfanlegur hluti kvikmyndalistarinnar, en ekki beint sjálfur bærinn litli í Provence-héraði í Suður-Frakklandi heldur hátíðin sem þar er haldin, einmitt árlega eins og Aguilera blessunin gat sér rétt til um. Halldór Kolbeins ljósmyndari og Skarphéðinn Guðmundsson blaðamaður sóttu bæinn heim og hátíðina sem lauk um síðustu helgi og fylgdust hugfangnir með þessum skrautlega darraðardansi. MYNDATEXTI. OF SEIN Í BÍÓ: Kvikmyndahátíðin í Cannes sker sig núorðið frá öðrum kvikmyndahátíðum hvað varðar að enn er farið fram á að menn komi til hátíðarsýninga klæddir í kjól og hvítt. Flestir bæta um betur og láta renna sér í hlað á vélknúnum fjórhjóla glæsidrossíum á meðan aðrir láta sér nægja fótknúna reiðhjólið.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar