Morgunblaðinu dreift ókeypis

Sverrir Vilhelmsson

Morgunblaðinu dreift ókeypis

Kaupa Í körfu

Fasteignablað fylgdi Morgunblaðinu í gær og mun eftirleiðis fylgja mánudagsblaðinu en hingað til hefur því verið dreift á þriðjudögum. Af því tilefni gátu landsmenn nálgast frítt eintak af blaðinu á öllum lausasölustöðum út um allt land á meðan upplag entist. Auk þess dreifðu vaskar sveitir ungmenna blaðinu meðal gesta Kringlunnar og Smáralindar og var því vel tekið. Á myndinni má sjá fríðan flokk við stafla af blöðum sem enduðu í höndum lesenda.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar