Landsliðsæfing í fótbolta

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Landsliðsæfing í fótbolta

Kaupa Í körfu

GUÐNI Bergsson, leikmaður íslenska landsliðsins í knattspyrnu, leikur á morgun kveðjuleik sinn á Laugardalsvelli - þegar Ísland mætir Færeyjum. Leikurinn er 80. leikur Guðna með íslenska landsliðinu. Guðni hefur ekki spilað leik á Laugardalsvelli síðan Ísland tapaði gegn Írum hinn 6. september árið 1997, en þá var hann fyrirliði liðsins. Guðni var valinn aftur í landsliðið fyrr á þessu ári þegar liðið lék gegn Skotum. MYNDATEXTI. Guðni Bergsson umkringdur ungum aðdáendum eftir landsliðsæfingu í gær á Laugardalsvellinum, þar sem hann gaf sér tíma til að gefa þeim eiginhandaráritanir á myndir sem Hekla gaf.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar