Malta Smáþjóðaleikar

Brynjar Gauti

Malta Smáþjóðaleikar

Kaupa Í körfu

"ÉG kann ekki íslenska þjóðsönginn en er að vinna í því að læra hann," sagði Damon Johnson körfuknattleiksmaður sem lék fyrsta landsleik sinn fyrir Ísland á Möltu gegn heimamönnum sl. mánudag og hefur Damon enn ekki tapað leik með íslenska landsliðinu en hann lék sinn þriðja leik í dag gegn Andorra. Damon lenti í talsverðu basli á ferðalagi sínu frá Spáni áleiðis til Möltu og var hann "síðasti maður í hús" en verkfall hjá Air Italia gerði það að verkum að Damon þurfti að fara frá Barcelona til Kanaríeyja áður en hann kom til Möltu seint á mánudag. Damon hefur dregið íslenska vagninn í þremur leikjum liðsins til þessa, stjórnað leik liðsins sem leikstjórnandi. MYNDATEXTI. Damon Johnson hefur leikið vel með íslenska körfuboltalandsliðinu á Möltu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar