Malta Smáþjóðaleikar

Brynjar Gauti

Malta Smáþjóðaleikar

Kaupa Í körfu

TVÆR erlendar stúlkur leika með íslenska kvennalandsliðinu í blaki, Miglena Apostolova, sem kemur frá Búlgaríu, og Natalía Gomzína, sem er rússnesk. Báðar hafa lengi leikið blak á Íslandi, Miglena síðan 1995 og Natalía síðan 1999, allan tímann í Neskaupstað en í haust flutti Natalía til Akureyrar þar sem hún gekk til liðs við KA. Báðum líkar vel á Íslandi og segjast ekki hafa í hyggju að flytja héðan - í það minnsta ekki á næstunni. MYNDATEXTI. Miglena Apostolova, sem kemur frá Búlgaríu, og Natalía Gomzína, frá Rússlandi, leika með blaklandsliðinu á Möltu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar