Malta Smáþjóðaleikar

Brynjar Gauti

Malta Smáþjóðaleikar

Kaupa Í körfu

FJÓRÐI og síðasti keppnisdagurinn í sundi á Smáþjóðaleikunum á Möltu var í gær og náði Louisa Ísaksen einu gullverðlaunum gærdagsins í 800 metra skriðsundi, og þar að auki bættust við þrenn silfurverðlaun og ein bronsverðlaun. Íslensku keppendurnir fengu samanlagt 33 verðlaun á Smáþjóðaleikunum, þar af 11 gullverðlaun, 14 silfurverðlaun og 8 bronsverðlaun. MYNDATEXTI: Örn Arnarson, Birkir Jónsson, Guðlaugur Guðmundsson og Heiðar Marinósson fagna silfurverðlaununum í 4x100 metra skriðsundi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar