Hótel Plaza

Jim Smart

Hótel Plaza

Kaupa Í körfu

FYRSTU gestirnir gistu á nýju hóteli við Ingólfstorg í Reykjavík yfir helgina. Hótelið rúmar um 160 manns í 81 herbergi og þegar er búið að afgreiða á annað hundrað gesta. Stefán Örn Þórisson hótelstjóri segir fyrstu gestina hafa verið hvaðanæva úr heiminum, en mikið til Skandinava. Einnig voru einhverjir gestir frá Ungverjalandi, Bretlandi og Þýskalandi. Stefán segir bókunarstöðuna mjög góða, enda hafi markaðsstarf í tengslum við hótelið staðið í meira en ár. ENGINN MYNDATEXTI.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar