Gríman 2003

Arnaldur Halldórsson

Gríman 2003

Kaupa Í körfu

Íslensk leiklistarverðlaun afhent á nýjan leik eftir þriggja áratuga hlé GRÍMAN - Íslensku leiklistarverðlaunin var afhent í fyrsta sinn í gærkvöld við hátíðlega athöfn í Þjóðleikhúsinu sem sjónvarpað var í beinni útsendingu. GRÍMAN - Íslensku leiklistarverðlaunin var afhent í fyrsta sinn í gærkvöld við hátíðlega athöfn í Þjóðleikhúsinu sem sjónvarpað var í beinni útsendingu. Verðlaun fyrir sýningu ársins hlaut leikhópurinn Á senunni fyrir verkið Kvetch eftir Steven Berkoff í leikstjórn Stefáns Jónssonar. Stefán hlaut einnig verðlaun fyrir bestu leikstjórn ársins. Kvenleikari ársins í aðalhlutverki var valin Edda Heiðrún Backman fyrir hlutverk sitt í Hægan Elektra og Kvetch. Edda fór af vettvangi með báðar hendur fullar því hún hlaut einnig verðlaun sem besti kvenleikari í aukahlutverki í Kryddlegnum hjörtum. Karlleikari ársins í aðalhlutverki var valinn Hilmir Snær Guðnason fyrir hlutverk sitt í Veislunni en besti karlleikari í aukahlutverki var Ólafur Darri Ólafsson. Leikskáld ársins var valinn Þorvaldur Þorsteinsson fyrir handritið að leiksýningunni ...And Björk of course. MYNDATEXTI: Grímuhafar hylltir að hátíð lokinni í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar