Hestakona

Anna Ólafsdóttir

Hestakona

Kaupa Í körfu

Á KYNBÓTASÝNINGU sem haldin var nýlega á Gaddstaðaflötum við Hellu hlaut Eydís, átta vetra hryssa frá Djúpadal, aðaleinkunnina 8,02. Knapi var Helga Björk Helgadóttir og eigandi er Benedikt Valberg, afi Helgu. Hún er aðeins 16 ára að aldri og þykir þetta býsna góður árangur hjá svo ungum sýnanda. Helga segist hafa umgengist hesta frá því hún man eftir sér og æft stíft frá tíu ára aldri. Hryssuna Eydísi hefur hún verið með í þrjú ár. Um helgina taka þær þátt í Íslandsmeistaramóti barna, unglinga og ungmenna í Mosfellsbæ. ENGINN MYNDATEXTI.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar