Harry Potter

Jim Smart

Harry Potter

Kaupa Í körfu

FIMMTA bókin um galdrastákinn Harry Potter kom út í gær, Harry Potter and the Order of the Phoenix, og ekki hefur áður gengið eins mikið á vegna útkomu bókar. Milljónir eintaka höfðu selst fyrirfram af bókinni og víða um heim voru bókaverslanir opnaðar á miðnætti aðfaranótt laugardagsins til að áhugasamir þyrftu ekki að bíða lengur eftir að komast yfir bókina. Hér á landi voru verslanir Pennans Eymundssonar í Lækjargötu og Máls og menningar opnaðar á miðnætti. Myndatexti: Fyrstu í röðinni voru leystir út með gjöfum. Frá vinstri: Unnsteinn Jóhannsson, Rósanna Andrésdóttir, Magnús Örn Sigurðsson, Inga Auðbjörg Kristjánsdóttr og Halla Hallsdóttir með bókina eftirsóttu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar